Sunnudagurinn 25. nóvember
Fræðslumorgunn kl. 10
Svana Helen Björnsdóttir, verkfræðingur, spjallar um kirkjuna og skipulag hennar og lítur um öxl á síðasta sunnudegi kirkjuársins.
Messa og sunnudagaskóli kl. 11
Sóknarprestur þjónar. Organisti er Glúmur Gylfason og leiðtogar sjá um sunnudagaskólann. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju syngja.
Kaffiveitingar og samfélag eftir athöfn í safnaðarheimilinu