Sunnudagurinn 16. desember
Þriðji sunnudagur í aðventu
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.
Sóknarprestur þjónar ásamt leiðtogum í sunnudagaskólanum. Organisti kirkjunnar leikur á orgelið. Sigurður Gíslason og Ellert Blær Guðjónsson syngja í athöfninni. Jólasveinninn kemur í heimsókn og gefur börnunum gjafir. Kaffiveitingar og samfélag í safnaðarheimilinu eftir athöfn.