Mánudaginn, 6. september, kl. 16-17.30, biðjum við fermingarbörnin að koma í Seltjarnarneskirkju til skráningar í fermingarfræðsluna, gengið inn að neðanverðu.
Við bjóðum fermingarbörn og foreldra sérstaklega velkomin til guðsþjónustu, 12. september kl. 11:00. Eftir guðsþjónustuna segjum við ykkur frá fræðsluefninu, tímunum og öðru fyrirkomulagi vetrarins. Við ætlum ekki að staldra lengi við svo að flestir ættu að geta séð af nokkrum mínútum áður en lagt er af stað heim. Æskilegt er að foreldri/ar, komi með sínu barni.
Mikilvægt!
Fermingarbarn og fjölskylda eru hvött til að sækja messur reglulega í vetur.
Muna að skrá sig í messuskráningarbók fermingingarbarna sem liggur í anddyri kirkjunnar.
Verið dugleg að mæta í æskulýðsfélagið – sunnudaga kl.20.
Hvað þarftu að gera.
Öll fermingarbörn mæti í messu sunnudaginn 12. sept. kl.11.
Öll fermingarbörn aðstoði við messuhald einu sinni í vetur, (kynnt í vetur). Skráið ykkur á dag og munið að mæta kl.10 þann sunnudag sem þið aðstoðið.
Hægt er að velja; lesa ritningarlestra, fara með bænir, aðstoða prest, dreifa sálmabókum í anddyri, hringja kirkjuklukkum, setja upp sálmanúmer á töflu, leika á hljóðfæri, syngja eða aðstoða í sunnudagaskóla.
Hvað þarf?
- Bókin, “Í stuttu máli sagt”, e. Kristine Aksoy og Geir Hegerström, í þýðingu Hreins Hákonarsonar, fæst í Hugföng Eiðistorgi og Kirkjuhúsinu á Laugarvegi.
- Nýjatestamentið
- A4 vinnubók, ritföng.




