Nýverið fóru fram tvennir stórmerkilegir tónleikar á Nesinu. Þeir fyrri voru djasstónleikar í félagsheimilinu og seinni tónleikarnir voru klassískir einleikstónleikar í kirkjunni. Tónleikarnir voru haldnir til fjáröflunar fyrir þakmálun Seltjarnarneskirkju, en aðgangseyririnn gengur óskertur til umrædds verkefnis. Þak kirkjunnar hefur legið undir skemmdum þar sem ekki hefur fengist fjármagn til að mála það. Fjárframlög til kirkjunnar hafa verið skorin umtalsvert niður vegna efnahagskreppunnar og því ákvað sóknarnefndin að hefja fjáröflun sl. vor til að geta framkvæmt umrætt verk sem mun kosta um tvær milljónir króna.





Miðvikudaginn 18. ágúst kl. 12.00
Mánudaginn, 6. september, kl. 16-17.30
Fimmtudaginn 1. júlí kl. 12.00