Barnastarf kirkjunnar byrjar með ferskum og skemmtilegum hætti í sunnudagskólanum kl. 11. Söngvar, brúður koma í heimsókn og börnin fá nýja poka og sögubók. Leiðtogar í barnastarfinu leiða stundina. Barn borið til skírnar. Prestur er Sigurður Grétar Helgason. Kaffi og samræður í safnaðarheimilinu eftir samveruna. Verið velkomin með barnið ykkar í barnastarf kirkjunnar.





Í kirkjuskólann koma börn á aldrinum 1 - 8 ára ásamt foreldrum og eiga saman skemmtilega og notalega stund. Kirkjuskólinn er á sama tíma og Guðsþjónusturnar eða kl. 11 á sunnudagsmorgnum. Börnin eru með í hinni almennu guðsþjónustu í u.þ.b. 10 mín. syngja eitt lag og ganga síðan niður á neðri hæð kirkjunnar þar sem fram fer stund sniðin að þeirra þörfum.