Annan og fjórða hvern þriðjudag kl. 13:30 er helgistund fyrir íbúa á Skólabraut. Stundin er byggð upp ásálmasöng, lestri úr ritningunni og útleggingu, þá er endað með bæn. Fyrsta helgistundin á Skólabraut er þriðjudaginn, 14. september.
Fyrsta þriðjudag í október, nóvember og desember er samvera eldri borgara í kirkjunni. Þá er komið saman í kirkjuskipinu og sameinast í bæn til Drottins. Oftar en ekki er hlýtt á góða tónlist og góðir gestir koma í heimsókn. Eftir stundina
er snæddur hádegisverður í safnaðarheimilinu og jafnvel tekið lagið, verð fyrir málsverð er 1000 krónur. Fyrsta samverustundin í kirkjunni er þriðjudaginn, 5. október og hefst kl. 11.




