Sunnudagurinn 17. apríl
Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11.
Sr. Bjarni Þór Bjarnsson, sóknarprestur, þjónar fyrir altari. Sr. Þórey Guðmundsdóttir, fyrrverandi sóknarprestur í Noregi, prédikar. Siv Friðleifsdóttir, fyrrverandi ráðherra, flytur ávarp. Hlíf Thors Arnlaugsdóttir og Elín Erlingsson lesa ritningarlestra. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Norskur kór sem heitir Vöfflukórinn syngur í athöfninni. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiða almennan safnaðarsöng. Pálína Magnúsdóttir, æskulýðsfulltrúi og leiðtogar sjá um sunnudagaskólann. Vöfflukaffi og áframhaldandi samfélga eftir athöfn.
Bænastund á fimmtudagsmorgnum
Bænastund verður á fimmtudagsmorgnum
Bænastundin sem hefur verið á föstudagsmorgnum kl. 8.30 mun framvegis vera á fimmtudagsmorgnum kl. 9. Boðið er upp á kaffi og vínarbrauð eftir stundina. Á þessum stundum er meðal annars beðið fyrir sjúkum. Fyrsta bænastundin samkvæmt þessu fyrirkomulagi verður fimmtudaginn 14. apríl kl. 9.