Sunnudagurinn 15. febrúar 2015

Fræðslumorgunn kl. 10

Jón G. Friðjónsson, prófessor emeritus, fjallar um áhrif Biblíunnar á íslenskt mál.

Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11

Sóknarprestur þjónar.

Organisti kirkjunnar leikur á orgelið. Félagar úr Kammerkór kirkjunnar leiða almennan safnaðarsöng.

Fermingarbörn og foreldrar lesa ritningarlestra og bænir.

Fundur með fermingarbörnum og foreldrum eftir atfhöfnina.  

Kaffihlaðborð.  

Sunnudagurinn 8. febrúar

Biblíudagurinn

Fræðslumorgunn kl. 10

Margrét Bóasdóttir, verkefnisstjóri kirkjutónlistar, fjallar um Biblíuna og tónlistina í tali og tónum

Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11

Sr. Valgeir Ástráðsson, stjórnarmaður í Hinu Íslenska Biblíufélagi, prédikar.

Sr. Bjarni Þór Bjarnason, sóknarprestur, þjónar fyrir altari.

Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiða almennan safnaðarsöng.

Kaffiveitingar.

Biblíumaraþon kl. 15-17

Lesnir verða valdir textar úr Biblíunni af ýmsum einstaklingum.

Organisti kirkjunnar leikur á orgelið.

Kaffiveitingar í safnaðarheimilinu. Fólk getur komið og farið eftir hentugleikum, fengið sér kaffi og spjallað.

Fjölmennum á fjölbreytilega atburði Biblíudagsins!

Sunnudagurinn 1. febrúar

Fræðslumorgunn kl. 10

Kristín Gunnlaugsdóttir, myndlistarmaður, segir frá áhrifum Biblíunnar í myndlist sinni.

Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11

Sóknarprestur þjónar.

Organisti kirkjunnar leikur á orgelið. Félagar í Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiða almennan safnaðarsöng.

Kaffiveitingar.