10. október

Birt í Orð til umhugsunar

Fólk er oft sjálfselskt, óskiljanlegt, ótryggt. Fyrirgefðu því samt.
Ef þú ert örlát(ur) muntu ef til vill verða ásakaður/ásökuð um sjálfselsku. Vertu samt örlát(ur).
Ef þér vegnar vel muntu eignast falska vini og sanna óvini, leitastu samt við að vegna vel. Ef þú ert heiðarleg(ur) og hreinskiptin(n) þá mun fólk ef til vill notfæra sér þig. Vertu samt heiðarleg(ur) og hreinskiptin(n).
Það sem þú hefur eytt árum í að byggja upp mun einhver ef til vill eyðileggja á einni nóttu. Byggðu samt.
Ef þú finnur frið og hamingju verður einhver ef til vill öfundsjúkur. Vertu samt hamingjusamur/hamingjusöm.
Það góða sem þú gerir í dag verður ef til vill gleymt á morgun. Gerðu samt góðverk í dag.
Gefðu heiminum það besta sem þú getur, og það nær áreiðanlega skammt. Gefðu samt það besta sem þú getur.
Því að þegar allt kemur til alls þá er þetta allt á milli þín og Guðs. Það verður aldrei á milli þín og hinna. (Móðir Teresa).

(Heimild: Orð í gleði)