23. september

Birt í Orð til umhugsunar

Þegar þú ert þreytt(ur) og uppgefin(n) máttu vita að Guð hefur séð hvað þú hefur lagt á þig. Þegar þú hefur grátið þig í svefn og hjartað þitt er að bresta, vittu að Guð telur tárin þín.
Þegar þér finnst tíminn hlaupa frá þér og ekkert gerist í lífi þínu, vittu þá að Guð bíður með þér. Þegar þér finnst þú einmana og vinalaus, vittu að Guð er þér við hlið. Þegar þér finnst þú hafa reynt allt og sért samat ráðþrota, vittu að Guð hefur ráð.
(Alltid elskad)
,,Yðar himneski faðir veit...” (Matt. 6.32)
(Heimild: Orð í gleði)