Sunnudagurinn 9. september
Uppskerumessa og sunnudagaskóli kl. 11.
Bjarni Þór Bjarnason, sóknarprestur, þjónar.
Leiðtogar sjá um sunnudagaskólann.
Friðrik Vignir Stefánsson er organisti.
Félagar úr Kammerkórnum syngja.
Kaffiveitingar og samfélag eftir athöfn.
Grænmetismarkaður eftir messuna í safnaðarheimilinu.
Allur ágóði rennur til innanlandsaðstoðar Hjálparstarfs kirkjunnar.
Sunnudagurinn 2. september
Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11.
Sigurður Óskar Óskarsson, nýráðinn æskulýðsfulltrúi Seltjarnarneskirkju
ásamt leiðtogum sjá um sunnudagaskólann sem hefst að nýju að loknu
sumarleyfi.
Guðsþjónusta sunnudagsins er græn vegna þess að kirkjan er í græna
hverfinu á bæjarhátíðinni. Sr. Bjarni Þór Bjarnason, sóknarprestur,
þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Félagar úr Kammerkórnum
syngja. Grænar veitingar í safnaðarheimili að lokinni athöfn.