Sunnudagurinn 4. janúar
Léttmessa í dúr en ekki moll kl. 11.
Sr. Bjarni Þór Bjarnason, sóknarprestur, þjónar. Halldór Unnar Ómarsson leiðir almennan safnaðarsöng. Kaffiveitingar.
Sr. Bjarni Þór Bjarnason, sóknarprestur, þjónar. Halldór Unnar Ómarsson leiðir almennan safnaðarsöng. Kaffiveitingar.
Metþátttaka var í kirkjuhlaupinu á öðrum degi jóla. Yfir 200 manns tóku þátt í hlaupinu. Hlaupið hófst með stuttir helgistund í Seltjarnarneskirkju kl. 10 um morguninn. Sr. Bjarni Þór Bjarnason, sóknarprestur annaðist stundina og Friðrik Vignir Stefánsson lék á orgelið.
Guðrún Geirsdóttir, formaður Trimmklúbbs Seltjarnarness flutti stutt ávarp.
Þátttakendur í kirkjuhlaupinu hlupu á milli 14 kirkna. Að hlaupi loknu beið hlauparanna heitt súkkulaði með rjóma og smákökur. Friðrik Guðmundsson í Melabúðinni gaf allar veitingar. Við þökkum honum kærlega fyrir það. Kirkjuhlaupið er orðið að föstum punkti í íþrótta- og menningarlífinu hér á Nesinu.